Félagsfundur 5. október 2021

Boðað er til félagsfundar í Kvenfélagi Garðabæjar 5. október 2021

Nú er loksins komið að því að við getum farið að hittast á fundi á Garðaholti sem hefst kl.19:00 þriðjudaginn 5. október 2021. Við vonumst svo sannarlega til að sjá ykkur allar hressar og kátar á fyrsta fundi vetrarins og að félagsstarfið okkar geti haldist með hefðbundnum hætti þetta starfsár.  Hlökkum til að sjá ykkur!

Dagskrá kvöldsins:

  1. Venjuleg fundarstörf
  2. Formaður býður konur velkomnar og fer yfir skýrslu stjórnar  
  3. Ritari les síðustu fundargerð
  4. Ferðanefnd tekur til máls
  5. Matur framreiddur
  6. Skemmtiatriði kvöldsins eru þær Tinna Margrét Hrafnkelsdóttir og Guðrún Ágústa Gunnarsdóttir og sýna úr frumsömdum söngleik “Pálmar”    

Pálmar

Þema kvöldsins verður “Hattakvöld

Þetta er matarfundur boðið verður upp á kjúklingarétt, salat og sætan bita á eftir, hvítvín og kristal.

Leggja þarf inn kr. 4.000 á bankareikninginn 0318-26-11124 kt 700169-7319 fyrir 30. september þá eru þið líka skráðar.

Einnig það þarf að tilkynna þátttöku nafni og síma til Guðrúnar Eggertsdóttur gudregg@gmail.com sími: 698 9359

Hattur

Fjölmennum á fundinn og gestir hjartanlega velkomnir.       

“Þakklæti er dýrmæt gjöf sem ætti að gefa óspart”

Kærleiks kveðja,
f.h.stjórnar kvenfélagsins                       

Helena Jónasdóttir, formaður           

Kvenfélag Garðabæjar

Kvenfélag Garðabæjar var stofnað 8. mars 1953.
Félagið er aðili að Kvenfélagasambandi Gullbringu- og Kjósarsýslu (K.S.G.K.), Kvenfélagasambandi Íslands (KÍ) og Húsmæðrasambandi Norðurlanda.

Nýjustu fréttirnar

Scroll to Top