17. júní hátíðarkaffihlaðborð Kvenfélagskvenna Garðabæjar verður í Sveinatungu á Garðatorgi.

Hið sívinsæla 17. Júní kaffihlaðborð Kvenfélagsins verður að
þessu sinni í Sveinatungu á Garðatorgi og verður hægt að sitja inni og úti
undir hvolfþakinu og drekka kaffið eftir skrúðgönguna.

Kaffið verður milli kl. 13:30 og 15:30

Kvenfélagskonur þjóna gestum sínum með flottum tertum sem eru yfirleitt heimabakaðar og brauðréttum sem eru yfirleitt heimabakaðar. 

Kvenfélagskonur tökum nú höndum saman og sýnum samtakamáttinn sem býr í Kvenfélagi Garðabæjar.

Hlökkum mikið til að sjá ykkur!

Kvenfélag Garðabæjar

Kvenfélag Garðabæjar var stofnað 8. mars 1953.
Félagið er aðili að Kvenfélagasambandi Gullbringu- og Kjósarsýslu (K.S.G.K.), Kvenfélagasambandi Íslands (KÍ) og Húsmæðrasambandi Norðurlanda.

Nýjustu fréttirnar

Scroll to Top