Félagsfundur 5. maí kl. 19:00

Boðað er til félagsfundar hjá Kvenfélagi Garðabæjar þriðjudaginn 5. maí 2025 í klúbbhúsi Golfklúbbsins Odds og hefst kl. 19:00.

Við fögnum sumri í dásamlegu umhverfi í uppsveitum Garðabæjar með glæsilegu útsýni.

Dagskrá kvöldsins:

Hefðbundin  fundarstörf

Kvöldverður og skemmtun þar sem þau Eva og Alfreð hjá veitingastaðnum HolaMathús reiða fram tveggja rétta matseðill. Maturinn kostar 7.900 sem greiðist á staðnum og barinn verður opinn.

Við vonumst til að sjá sem flestar á fundinum og endilega bjóðið vinkonum með. Alltaf meira gaman saman. Þema kvöldsins blóm og hattar – hvetjum konur til að draga fram blómakjólinn og sumarhattinn.

Nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vefsíðu félagsins https://kvengb.is/dagskra/ eða með tölvupósti ritari@kvengb.is en einnig er hægt að senda sms í síma 863-0084.

F.h.  stjórnar Kvenfélags Garðabæjar
Steinunn Bergmann formaður

Kvenfélag Garðabæjar

Kvenfélag Garðabæjar var stofnað 8. mars 1953.
Félagið er aðili að Kvenfélagasambandi Gullbringu- og Kjósarsýslu (K.S.G.K.), Kvenfélagasambandi Íslands (KÍ) og Húsmæðrasambandi Norðurlanda.

Nýjustu fréttirnar

Scroll to Top