Hátíðarkaffi Kvenfélags Garðabæjar heppnaðist vel

Hið árlega Hátíðarkaffi Kvenfélags Garðabæjar fór fram 17. júní síðastliðinn og heppnaðist með miklum ágætum. Hátíðarkaffið er stærsta fjáröflun félagsins og um leið einn af föstum liðum í hátíðahöldum bæjarins á þjóðhátíðardaginn.

Tæplega 600 manns lögðu leið sína á kaffihlaðborðið í ár, sem er frábær aðsókn og til marks um hve fastan sess þessi hefð á meðal bæjarbúa.

Kvenfélagið vill koma á framfæri innilegu þakklæti til félagskvenna sem lögðu hönd á plóg, bæði með því að baka og koma með veitingar á hlaðborðið og með ómetanlegri vinnu sinni á staðnum sjálfum. Án þeirra framlags væri viðburður sem þessi ekki mögulegur.

Einnig er starfsfólki Garðabæjar þakkað fyrir ánægjulegt samstarf við undirbúning og framkvæmd dagsins.

Að lokum þakkar félagið íbúum Garðabæjar innilega fyrir að mæta og styðja við bakið á starfseminni. Með þátttöku sinni leggja bæjarbúar sitt af mörkum til góðgerðarmála í sveitarfélaginu, en ágóði af Hátíðarkaffinu rennur til fjölbreyttra málefna í þágu samfélagsins.

Kvenfélag Garðabæjar

Kvenfélag Garðabæjar var stofnað 8. mars 1953.
Félagið er aðili að Kvenfélagasambandi Gullbringu- og Kjósarsýslu (K.S.G.K.), Kvenfélagasambandi Íslands (KÍ) og Húsmæðrasambandi Norðurlanda.

Nýjustu fréttirnar

Scroll to Top