Boðað er til félagsfundar hjá Kvenfélagi Garðabæjar að Garðaholti þriðjudaginn 3. október 2023 kl. 19:00.
Kæru kvenfélagskonur!
Boðað er til félagsfundar Kvenfélags Garðabæjar að Garðaholti þriðjudaginn 3. október 2023 kl. 19:00
Á dagskrá fundarins eru almenn fundarstörf.
Fjallakofinn kemur í heimsókn og kynnir allt það nýjasta í skíðavörum fyrir komandi vetur:
- Egill Ingi Jónsson landsliðsþjálfari í Alpagreinum og Sævar Birgisson Olympíufari og Íslandsmeistari á gönguskíðum kynna fyrir okkur það nýjasta í svig- og gönguskíðum ásamt tilheyrandi búnaði.
- Einnig svara þeir spurningum varðandi búnað til styttri og lengri göngu- og útivistaferða sem verður áhugavert að fræðast um fyrir útivistina í náttúruperlunni Garðabæ.
- Allar sem mæta á fundinn fá afhentan afsláttarmiða sem gildir í verslun Fjallakofans út októbermánuð.
Boðið verður upp á grilluð hunangs marineruð kjúklingalæri (úrb.) með hrísgrjónum, sætum kartöflum og jógúrtsósu. Hægt verður að kaupa léttar veitingar á hóflegu verði.
Fundargjald er kr. 3.500 og eru konur vinsamlega beðnar um að greiða inn á reikning 0318-26-011124, kt. 700169-7319. Það er hægt að velja netbankann beint af heimasíðu félagsins kvengb.is við skráningu á fundinn hér eða senda tölvupóst á formadur@kvenbg.is og / eða í síma Halldóru 852-1619.
ATHUGIÐ AÐ ÞAÐ VERÐUR AÐ SKRÁ SIG Á FUNDINN EÐA LÁTA VITA UM MÆTINGU.
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flestar !
Fyrir hönd stjórnar Kvenfélags Garðabæjar,
Halldóra Björk Jónsdóttir, formaður
Kynning frá fjallakofanum
Fjallakofinn kemur í heimsókn og kynnir allt það nýjasta í skíðavörum fyrir komandi vetur.