Kæru Kvenfélagskonur!
Boðað er til jólafundar Kvenfélags Garðabæjar á Garðaholti þriðjudaginn 6. desember 2022 kl. 19:00
Dagskrá kvöldsins: mjög fjölbreytt, skemmtileg og jólaleg!
Formaður setur fundinn og les skýrslu stjórnar
Ritari les síðustu fundargerð
Kaffihlaðborð að hætti jóla kl. 19:30 í umsjón hóps 3 og eru hópstjórar Halldóra Björk Jónsdóttir og Hallveig Hilmarsdóttir. Konur hafa konur alltaf gaman af að fá smá spjall
Létt jólalög leikin af Hilmari Hjartarsyni
Jólahugvekju les Matthildur Bjarnadóttir prestur
Skemmtilegur og spennandi leynigestur kvöldsins!
Munið að kíkja undir diskana hjá ykkar þar gæti læðst vinningur.
Vinsamlega skráið ykkur á fundinn hér á vefsíðunni okkar https://kvengb.is/dagskra/ og fer þá pósturinn beint til ritara. Ef að þú ert ekki með tölvu má hringja í ritara Guðrúnu Eggertsdóttur í síma 698 9359 og bóka sig hjá henni.
Vinsamlega leggið fundargjaldið kr.1.500 inn á reikning 0318-26-11124 kt. 700169-7319. Einnig verður hægt að greiða gjaldið á fundinum.
Fjölmennum á fundinn og gestir eru velkomnir. “Þema jól”
F.h. stjórnar Kvenfélags Garðabæjar
S.Helena Jónasdóttir formaður