Kæru kvenfélagskonur,
tekin hefur verið ákvörðun um að aflýsa jólafundinum okkar.
Ekkert lát er á Covid19 smitum í samfélaginu og samkvæmt reglum til 8. desember er ekki leyft að fleiri en 50 komi saman nema að framvísað verði neikvæðu hraðprófi, að metersreglu sé fylgt og viðkomandi sitji í skráðum sætum.
Förum varlega og hlökkum til að halda jólahátíðina gleðilega með okkar nánasta fólki. Við vonum að lífið í landinu verði ekki svona miklum takmörkunum háð á næsta ári.
Aðventumessunni okkar sem vera átti í Vídalínskirkju 28. nóvember kl. 11:00 verður breytt, henni verður streymt, streymisslóðina má finna í auglýsingu á Fb-síðu Vídalínskirkju.
Jóna Hrönn Bolladóttir þjónar fyrir altari ásamt félagskonum
Jóna Rún Gunnarsdóttir er ræðumaður
Auður Guðmundsdóttir og Bjarndís Lárusdóttir lesa ritningarlestra
Með kærleikskveðjum
f.h. stjórnar
S. Helena Jónasdóttir formaður
Guðrún G. Eggertsdóttir varaformaður