Félagsfundur 7. april kl. 19:00

Boðað er til félagsfundar hjá Kvenfélagi Garðabæjar þriðjudaginn 7. apríl 2026 á Garðaholti sem hefst kl. 19:00

Dagskrá kvöldsins:

  • Hefðbundin fundarstörf
  • Kaffihlaðborð í umsjá hóps 3

Gestur kvöldsins er Gunnar Hersveinn sem kunnur er fyrir skrif sín um lífsgildi og samfélag

sleg málefni. Hann er heimspekingur og hefur starfað við kennslu og blaðamennsku. Hann hefur stundað ritstörf í áratugi og skrifað töluvert um jafnrétti, umhverfisvernd og friðarmenningu. Meðal bóka sem hann hefur skrifað má nefna Gæfuspor- gildin í lífinu, Heillaspor – gildin okkar, Þjóðgildin og Vending- vínlaus lífsstíll.  www.lifsgildin.is/

Í erindi sínu á fundinum mun Gunnar segja frá völdum lífsgildum úr bókinni Gæfuspor – gildin í lífinu, sem hann er að uppfæra fyrir næstu útgáfu. Einnig mun hann nefna, ef tími gefst til, hvernig hann kennir fólki að nota lífsgildi til að breyta um lífsstíl.

Þema kvöldsins er guli litur páska og vorsins og hvetjum konur til að skarta gulu.

Við vonumst til að sjá sem flestar á fundinum og endilega bjóðið gestum með, alltaf meira gaman saman. Hvetjum konur til að taka með það sem er á prjónunum eða aðra handavinnu

Mikilvægt er að skrá þátttöku og staðfesta með því að leggja fundargjaldið kr. 2.500 inn á reikning 0318-26-11124 kt. 700169-7319 greiðsla gildir sem skráning

Jafnframt verður hægt að greiða gjaldið á fundinum en þá er nauðsynleg að skrá þátttöku á vefsíðu félagsins  https://kvengb.is/dagskra/ eða með tölvupósti ritari@kvengb.is

F.h.  stjórnar Kvenfélags Garðabæjar
Steinunn Bergmann formaður

Kvenfélag Garðabæjar

Kvenfélag Garðabæjar var stofnað 8. mars 1953.
Félagið er aðili að Kvenfélagasambandi Gullbringu- og Kjósarsýslu (K.S.G.K.), Kvenfélagasambandi Íslands (KÍ) og Húsmæðrasambandi Norðurlanda.

Nýjustu fréttirnar

Scroll to Top