Boðað er til félagsfundar hjá Kvenfélagi Garðabæjar þriðjudaginn 5. maí 2025 í klúbbhúsi Golfklúbbsins Odds og hefst kl. 19:00.
Við fögnum sumri í dásamlegu umhverfi í uppsveitum Garðabæjar með glæsilegu útsýni.
Dagskrá kvöldsins:
Hefðbundin fundarstörf
Kvöldverður og skemmtun þar sem þau Eva og Alfreð hjá veitingastaðnum HolaMathús reiða fram tveggja rétta matseðill. Maturinn kostar 7.900 sem greiðist á staðnum og barinn verður opinn.
Við vonumst til að sjá sem flestar á fundinum og endilega bjóðið vinkonum með. Alltaf meira gaman saman. Þema kvöldsins blóm og hattar – hvetjum konur til að draga fram blómakjólinn og sumarhattinn.
Nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vefsíðu félagsins https://kvengb.is/dagskra/ eða með tölvupósti ritari@kvengb.is en einnig er hægt að senda sms í síma 863-0084.
F.h. stjórnar Kvenfélags Garðabæjar
Steinunn Bergmann formaður