Aðalfundur Kvenfélags Garðabæjar 2025 verður haldinn þriðjudaginn 4. febrúar kl. 19 að Garðaholti
Dagskrá fundarins er venjuleg aðalfundarstörf
- Fundargerð síðasta félagsfundar sem fylgir fundarboði borin undir fundinn
- Ársskýrsla 2024
- Ársreikningur kvenfélagsins
- Kosið verður í aðalstjórn og varastjórn
- Kosið verður í nefndir
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
- Kosning þriggja kvenna í uppstillingarnefnd
- Önnur mál
Kaffihlaðborð í umsjón hóps 5 – kaffigjald er kr. 2.000
Við hlökkum til að sjá sem flestar kvenfélagskonur
Nánari upplýsingar um fundinn eru á heimasíðu félagsins ogþar er hægt að skrá sig og greiða í heimabanka beint af skráningarsíðunni eða við innganginn. Einnig er hægt að skrá sig með því að senda ritara, Svövu Gústavsdóttur skilaboð í síma 895-7811 (eða hringja).
Stjórn Kvenfélags Garðabæjar