Á dagskrá fundarins eru almenn fundarstörf.
Á fundinum munum við vinna í hópum að greiningu á félaginu, félagsstarfinu, eignum félagsins, staðsetningu funda o.s.frv.
Félagskonur mega gjarnan undirbúa sig með því að velta fyrir sér eftirfarandi spurningum:
- Hvernig er best að varðveita eignir félagsins?
- Hvaða staðsetning er hentug fyrir félagsfundi?
- Hvernig viljum við hafa félagsfundina?
- Hvernig löðum við nýjar konur að félaginu og viðhöldum áhuga á þátttöku?
Með þessar spurningar í huga getum við velt fyrir okkur styrkleikum félagsins sem og veikleikum, hverjar eru áskoranir og hver eru tækifæri félagsins.
Fundurinn verður í umsjón hóps 1 og verða veitingar hefðbundnar að hætti félagskvenna. Fundargjald er kr. 2.000, vinsamlega leggið inn á reikning félagsins, kt. 700169-7319, reikningsnr. 0318-26-011124.
Hægt er að skrá sig á fundinn á vefsíðu félagsins, kvengb.is eða með því að senda ritara tölvupóst á ritari@kvengb.is.
Við vonumst til að sjá ykkur sem flestar til að vinna að því að greina og bæta starf kvenfélagsins.
F.h. stjórnar Kvenfélags Garðabæjar,
Halldóra Björk Jónsdóttir, formaður