Hið sívinsæla 17. Júní kaffihlaðborð Kvenfélagsins verður að
Sveinatungu á Garðatorgi og verður hægt að sitja inni og úti undir hvolfþakinu og fá sér kaffi og heimabakað eftir skrúðgönguna. Kaffið er milli kl. 13:30 – 15:30
Kvenfélagskonur þjóna gestum sínum með flottum tertum sem eru yfirleitt heimabakaðar og brauðréttum.
Kvenfélagskonur tökum nú höndum saman og sýnum samtakamáttinn sem býr í Kvenfélagskonum Garðabæjar.
Hlökkum mikið til að sjá ykkur!
Fyrir hönd stjórnar Kvenfélags Garðabæjar,
Halldóra Björk Jónsdóttir, formaður