Kæru kvenfélagskonur!
Fundarboð aðalfundar Kvenfélags Garðabæjar 2022
Boðað er til aðalfundar Kvenfélags Garðabæjar á Garðaholti miðvikudaginn 23.02.2022 kl.19:00
Á dagskrá fundarins er venjuleg aðalfundarstörf skv. lögum félagsins
- Lesin upp fundargerð síðasta félagsfundar
- Skýrsla stjórnar
- Reikningar félagsins
- Reikningar félagsins bornir undir atkvæði
- Lagabreytingar, meðf. eru tillögur stjórnar um lagabreytingar
- Ákvörðun félagsgjalda
- Stjórnarkjör
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
- Nefndakjör
- Önnur mál
Veitingar snittur og sætur biti verð kr. 2.500 vinsamlega leggið inn á reikning
kt. 700169-7319 0318-26-11124.
Félagskonur þurfa að skrá sig til fundar með nafni, kennitölu og netfangi á vefsíðunni undir liðnum dagskrá eða senda tölvupóst á ritari@kvengb.is eða í síma 698 9359 Guðrúnar Eggertsdóttur varaformanns.
Skráning á aðalfundinn þarf að berast eigi síðar en mánudaginn 21. febrúar nk.
Hlökkum til að sjá sem flestar kvenfélagskonur
Kær kveðja
F.h.stjórnar Kvenfélags Garðabæjar,
S.Helena Jónasdóttir formaður