Frestun aðalfundar 2022

Kæru Kvenfélagskonur

Gleðilegt nýtt ár og hjartans þakkir fyrir liðið ár. Við stjórnarkonur vonum innilega að hátíðin hafi verið þér og þínum ljúf og óskum þess að nýja árið færi ykkur og fjölskyldum ykkar farsæld á nýju ári. Hvað það nýja ber í skauti sér, saman eftir því við verðum öll að bíða.

Að lifa á tímum heimsfaraldurs er krefjandi fyrir okkur öll. Við stöndum ítrekað frammi fyrir áskorunum, þurfum að breyta hvernig mögulegt er að gera hlutina, hittum færri og lifum við óvissu.

Stjórn kvenfélags Garðabæjar hefur ákveðið í ljósi reglugerðar um takmörkun á samkomum, vegna sóttvarna og mikillar smithættu að fyrirhuguðum aðalfundi, sem átti að vera 1. febrúar 2022 verði frestað og settur á dagskrá síðar eins fljótt og frekast er unnt.                                                    

Kærleikskveðjur
F.h. stjórnar kvenfélagsins      

S.Helena Jónasdóttir formaður        

Kvenfélag Garðabæjar

Kvenfélag Garðabæjar var stofnað 8. mars 1953.
Félagið er aðili að Kvenfélagasambandi Gullbringu- og Kjósarsýslu (K.S.G.K.), Kvenfélagasambandi Íslands (KÍ) og Húsmæðrasambandi Norðurlanda.

Nýjustu fréttirnar

Scroll to Top