Kæru kvenfélagskonur
Stór áfangi lítur nú dagsins ljós hjá Kvenfélagi Garðabæjar þegar nýr vefur www.kvengb.is fer í loftið. Gamli vefurinn var orðinn löngu úreltur og orðið erfitt að uppfæra hann enda barns síns tíma. Samið var við Birnu Maríu hjá Character.is um smíði á nýjum vef og var einstaklega gott að vinna með henni. F.h. kvenfélagsins vann ein stjórnarkonan Pálína Kristinsdóttir að skipulagningu og umsjón.
Nú geta allir félagar skráð sig á fundi og ferðir á vegum félagsins í gegnum vefsíðuna. Einnig er facebook síðan okkar tengd við nýja vefinn.
Við hvetjum allar konur í Garðabæ að ganga í félagið og geta þær nú skráð sig í félagið beint á vefnum.
Vissir þú …. að Kvenfélag Garðabæjar er eitt fjölmennasta og virkasta kvenfélag landsins?