Boðað er til félagsfundar hjá Kvenfélagi Garðabæjar 2. nóvember 2021 á Garðaholti sem hefst kl.19:00.
Dagskrá kvöldsins:
- Venjuleg fundarstörf
- Formaður býður konur velkomnar og les skýrslu stjórnar
- Ritari les síðustu fundargerð
Kaffihlaðborð hefst kl.19:30
Skemmtiatriði kvöldsins, Þuríður Sigurðardóttir sem mun skemmta okkur eins og henni er einni lagið
Gestir á fundinum eru úr Félagi Kvenna í Kópavogi
Kaffihlaðborð að hætti kvenfélagskvenna sem hópur 6 sér um í umsjá Steinunnar Bergmann og Þuríðar Sigurðardóttur og er verð kr. 1.500 á mann
Konur takið með ykkur gesti, systur, vinkonur
Gott væri að þið myndu skrá ykkur hjá Guðrúnu Eggertsdóttur varaformanni á fundinn email gudregg@gmail.com gsm 6989359 vegna veitinganna.
Við vonumst svo sannarlega til að sjá ykkur allar hressar og kátar á félagsfundi. Höfum gaman saman!
ATH. BLEIKT ÞEMA
“Besti vinur minn er sá sem gerir mig að betri manni”
Kærleiks kveðja,
F.h. stjórnar kvenfélagsins
S.Helena Jónasdóttir, formaður