Félagsfundur 3. mars kl. 19:00

Boðað er til félagsfundar hjá Kvenfélagi Garðabæjar þriðjudaginn 3. mars 2026 á Garðaholti sem hefst kl. 19:00.

Dagskrá kvöldsins:

  • Hefðbundin fundarstörf
  • Kaffihlaðborð í umsjá hóps 2
  • Gestir kvöldsins eru Helena Guðrún og Guðrún Ágústa sem ætla að syngja nokkur lög

Við vonumst til að sjá sem flestar á fundinum og endilega bjóðið gestum með, vinkonum, dætrum, frænkum. Spjöllum saman, alltaf meira gaman saman.

Hvetjum konur til að taka með það sem er á prjónunum eða aðra handavinnu.

Mikilvægt er að skrá þátttöku og staðfesta með því að leggja fundargjaldið kr. 2.500 inn á reikning 0318-26-11124 kt. 700169-7319. Greiðsla gildir sem skráning.

Jafnframt verður hægt að greiða gjaldið á fundinum en þá er nauðsynleg að skrá þátttöku á vefsíðu félagsins  https://kvengb.is/dagskra/  með tölvupósti ritari@kvengb.is.

F.h.  stjórnar Kvenfélags Garðabæjar

Steinunn Bergmann formaður

Kvenfélag Garðabæjar

Kvenfélag Garðabæjar var stofnað 8. mars 1953.
Félagið er aðili að Kvenfélagasambandi Gullbringu- og Kjósarsýslu (K.S.G.K.), Kvenfélagasambandi Íslands (KÍ) og Húsmæðrasambandi Norðurlanda.

Nýjustu fréttirnar

Scroll to Top