Boðað er til félagsfundar í Kvenfélagi Garðabæjar 5. október 2021
Nú er loksins komið að því að við getum farið að hittast á fundi á Garðaholti sem hefst kl.19:00 þriðjudaginn 5. október 2021. Við vonumst svo sannarlega til að sjá ykkur allar hressar og kátar á fyrsta fundi vetrarins og að félagsstarfið okkar geti haldist með hefðbundnum hætti þetta starfsár. Hlökkum til að sjá ykkur!
Dagskrá kvöldsins:
- Venjuleg fundarstörf
- Formaður býður konur velkomnar og fer yfir skýrslu stjórnar
- Ritari les síðustu fundargerð
- Ferðanefnd tekur til máls
- Matur framreiddur
- Skemmtiatriði kvöldsins eru þær Tinna Margrét Hrafnkelsdóttir og Guðrún Ágústa Gunnarsdóttir og sýna úr frumsömdum söngleik “Pálmar”
Þema kvöldsins verður “Hattakvöld”
Þetta er matarfundur boðið verður upp á kjúklingarétt, salat og sætan bita á eftir, hvítvín og kristal.
Leggja þarf inn kr. 4.000 á bankareikninginn 0318-26-11124 kt 700169-7319 fyrir 30. september þá eru þið líka skráðar.
Einnig það þarf að tilkynna þátttöku nafni og síma til Guðrúnar Eggertsdóttur gudregg@gmail.com sími: 698 9359
Fjölmennum á fundinn og gestir hjartanlega velkomnir.
“Þakklæti er dýrmæt gjöf sem ætti að gefa óspart”
Kærleiks kveðja,
f.h.stjórnar kvenfélagsins
Helena Jónasdóttir, formaður