Aðalfundur 4. febrúar kl. 19:00

Aðalfundur Kvenfélags Garðabæjar 2025 verður haldinn þriðjudaginn 4. febrúar kl. 19 að Garðaholti

Dagskrá fundarins er venjuleg aðalfundarstörf

  • Fundargerð síðasta félagsfundar sem fylgir fundarboði borin undir fundinn
  • Ársskýrsla 2024
  • Ársreikningur kvenfélagsins
  • Kosið verður í aðalstjórn og varastjórn
  • Kosið verður í nefndir
  • Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
  • Kosning þriggja kvenna í uppstillingarnefnd
  • Önnur mál

Kaffihlaðborð í umsjón hóps 5 – kaffigjald er kr. 2.000

Við hlökkum til að sjá sem flestar kvenfélagskonur

Nánari upplýsingar um fundinn eru á heimasíðu félagsins ogþar er hægt að skrá sig og greiða í heimabanka beint af skráningarsíðunni eða við innganginn.  Einnig er hægt að skrá sig með því að senda ritara, Svövu Gústavsdóttur skilaboð í síma 895-7811 (eða hringja).

Stjórn Kvenfélags Garðabæjar

Kvenfélag Garðabæjar

Kvenfélag Garðabæjar var stofnað 8. mars 1953.
Félagið er aðili að Kvenfélagasambandi Gullbringu- og Kjósarsýslu (K.S.G.K.), Kvenfélagasambandi Íslands (KÍ) og Húsmæðrasambandi Norðurlanda.

Nýjustu fréttirnar

Scroll to Top